Öldrunarlæknir HSN
- valtyraron
- Sep 13, 2024
- 1 min read
Arna Rún Óskarsdóttir er sérfræðingur í öldrunarlækningum. Aðalstarfsstöð er tengd heimahjúkrun með viðveru í Skarðshlíð.
Aðalhlutverkið er að þétta þjónustuna við aldraða utan hjúkrunarheimila.
Getur sinnt konsúltum við okkur.
Beiðni um konsúlt:
Sjúklingur „bókaður“ á tímabókunarkerfi hjá HAk Ö -Arna Rún Óskarsdóttir í slot sem hún mun opna 1x í viku merkt konsúltbeiðnum.
Í athugasemd við tímabókunina skal vitna í Belg, samskiptaseðil eða læknabréf þar sem hnitmiðuð sjúkrasaga kemur fram og skýrar spurningar um hvað viðkomandi læknir vill fá aðstoð með.
Einnig skal setja á tímabókunina símanúmer sem má hringja í og hvenær ef Arna þarf meira kjöt á beinin.
Reiknað er með að beiðnum sé svarað í texta undir samskiptum með „Öldrunarlæknir“
Svarið kemur á nýju eyðublaði undir þeim samskiptum.
Ef vangavelturnar eru almennari frekar en bein konsúltbeiðni má líka hringja í vinnunúmerið sem finnst á Teams, eða setja kennitölu á bókunarkerfið og biðja um símtal.
Comments