Vefjarannsókn
- valtyraron
- Sep 4, 2024
- 1 min read
Beiðnir um vefjarannsókn á SAk eru ekki gerðar í gegnum heilsugátt.
Heilsugátt á að taka við af núverandi kerfi en það gengur hægt að fá það í gagnið.
Eyðublað í Sögu: Beiðni um vefjarannsókn
Mikilvægast er að tilgreina þarna fjölda sýna og hvernig þau voru merkt. Einnig að merkingin á sýni og upptalningin á beiðninni stemmi.
Ef fleiri en eitt sýni eru þá skal númera þau.
Mjög mikilvægt er að hvert sýnaglas sé merkt með nafni, kt sjúklings og innihaldi.
Það væri mjög óábyrgt af meinafræðideild að giska í eyðurnar og þá jafnvel "greina" rangan sjúkling með rangan sjúkdóm. Við berum ábyrgðina hér.
Mikilvægt er að skráningin á sýnum og á beiðni sé rétt til þess að ef kemur í ljós malignitet í einum blettinum að það sé alveg skýrt hver sá blettur var.
Það þarf ekki að senda beiðnina sérstaklega, bara staðfesta eyðublaðið í sögu.
Ritari á meinafræðideild SAk fiskar hana svo út úr sögu þegar sýnin berast


Comments