top of page

Umönnunarbætur

  • valtyraron
  • Sep 26, 2024
  • 1 min read
  • Var á gömlu vottorði sem hét TR-V umönnunarbætur

  • Eyðublaðið sem við notum núna: TR Umönnunarvottorð. Dynamískt eyðublað inni í Sögu.

  • Dálítið torf fyrir foreldri að finna út hvaða gagna skuli afla. Gæti verið gagnlegt að fá aðkomu félagsráðgjafa þegar fólk er að sækja um þetta í fyrsta skipti svo barn flokkist svo í réttan flokk út frá fötlun eða veikindum.

Klausan frá TR er „Hægt er að sækja um umönnunargreiðslur þegar umönnun barns er umfram það sem eðlilegt getur talist hjá barni á sama aldri og einnig þegar kostnaður er mikill vegna: heilbrigðisþjónustu, meðferðar eða þjálfunar“


  • Væntanlega er þetta kerfi hugsað til að vega upp á móti því að foreldri með veikt barn hafi færri möguleika til tekjuöflunar vegna umönnunarþyngdar barns.

  • Sjá nánar: https://island.is/umonnunargreidslur-barna

Vottorðið leiðir mann í gegnum hvað skuli taka afstöðu til.

Oft er hægt að styðjast við fyrri vottorð.


Greining á samskiptaseðli: Z02.7 - Útgáfa læknisvottorðs

Úrlausn: Tr vottorð - umönnunarbætur.

Kemur sjálfkrafa upp ef vottorð og samskiptaseðill eru í sömu lotu.

 
 
 

Comments


bottom of page