top of page

Tilvísun á NLFÍ í Hveragerði

  • valtyraron
  • Nov 10, 2023
  • 1 min read

Updated: Mar 1, 2024

  • Hveragerði býður upp á tvö úrræði. Heilsudvöl og Endurhæfingu.

  • Heilsudvölina getur fólk bókað alfarið sjálft og er ekki háð tilvísun en kostar meira. Þjónustan er ekki eins intensíf og í endurhæfingardvöl.

  • Enurhæfingardvöl er háð tilvísun. Sjúkratryggingar greiða hluta kostnaðar (c.a 70% skv heimasíðu NLFÍ) ef endurhæfingardvöl er samþykkt.

  • Fólk þarf sjálft að setja sig í samband við NLFÍ hvort sem óskað er eftir heilsudvöl eða endurhæfingardvöl til að pannta þjónustuna.



  • Tilvísanir voru þannig að þær þurftu að heita Læknabréf og heilbrigðisgagnafræðingar komu þessu til skila.

  • Núna er þetta komið á eyðublaðið "Tilvísun" eins og aðrar tilvísanir og sendist rafrænt.

    • Best er að haka í "stofnun" á tilvísunarblaðinu en ekki "læknir". Leita að NLFÍ og stíla blaðið á adressuna í hveragerði, Grænumörk 10 (ekki á NLFÍ í Reykjavík)



  • NLFÍ óskar eftir að eftirfarandi upplýsingar komi fram í tilvísunum.

    • Sjúkdómsgreiningar

    • Lyf

    • Sjúkrasaga/skoðun/sjúkdómar

    • Markmið endurhæfingar

    • Upplýsingar um hreyfi- og sjálfsbjargargetu og vitsmunalega getu

    • Aðrar upplýsingar eftir því sem við á og/eða máli skipta


Til að senda blaðið:

hægri klikka -> senda blað rafrænt -> skrifa nlfí og þá á að poppa upp -> "Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands"



 
 
 

Comments


bottom of page