Tilvísun á NLFÍ í Hveragerði
- valtyraron
- Nov 10, 2023
- 1 min read
Updated: Mar 1, 2024
Hveragerði býður upp á tvö úrræði. Heilsudvöl og Endurhæfingu.
Heilsudvölina getur fólk bókað alfarið sjálft og er ekki háð tilvísun en kostar meira. Þjónustan er ekki eins intensíf og í endurhæfingardvöl.
Enurhæfingardvöl er háð tilvísun. Sjúkratryggingar greiða hluta kostnaðar (c.a 70% skv heimasíðu NLFÍ) ef endurhæfingardvöl er samþykkt.
Fólk þarf sjálft að setja sig í samband við NLFÍ hvort sem óskað er eftir heilsudvöl eða endurhæfingardvöl til að pannta þjónustuna.
Tilvísanir voru þannig að þær þurftu að heita Læknabréf og heilbrigðisgagnafræðingar komu þessu til skila.
Núna er þetta komið á eyðublaðið "Tilvísun" eins og aðrar tilvísanir og sendist rafrænt.
Best er að haka í "stofnun" á tilvísunarblaðinu en ekki "læknir". Leita að NLFÍ og stíla blaðið á adressuna í hveragerði, Grænumörk 10 (ekki á NLFÍ í Reykjavík)
NLFÍ óskar eftir að eftirfarandi upplýsingar komi fram í tilvísunum.
Sjúkdómsgreiningar
Lyf
Sjúkrasaga/skoðun/sjúkdómar
Markmið endurhæfingar
Upplýsingar um hreyfi- og sjálfsbjargargetu og vitsmunalega getu
Aðrar upplýsingar eftir því sem við á og/eða máli skipta
Til að senda blaðið:
hægri klikka -> senda blað rafrænt -> skrifa nlfí og þá á að poppa upp -> "Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands"
Comments