Lyfjaskömmtun
- valtyraron
- Feb 12, 2024
- 1 min read
Lang auðveldast er að gera lyfjaskömmtun í gegn um miðlæga lyfjakortið
Ef fólk er ekki með miðlægt lyfjakort er best að búa slíkt til fyrst
Haka þarf í lyfjaskömmtun þegar nýr lyfseðill er gerður / gamall endurnýjaður
Þá á sjálfkrafa að koma mánuðir 12 inn á seðilinn.
Ef það gerist ekki þarf að tryggja að seðillinn endist í 1 ár
Þegar allir lyfseðlar eru klárir getur læknirinn hringt í apótek og látið græja skömmtun eða sjúklingur getur farið sjálfur í apótek.
Öll apótekin á Akureyri sjá um að skaffa lyfjarúllur. Sjúklingur þarf að velja sjálfur við hvaða apótek viðkomandi vill skipta.
Þegar breyta þarf skömmtun þarf að gera nýja skömmtunarseðla og hringja í viðkomandi apótek.
Flest apótek geta afhent lyf á 7, 14 eða 28 daga fresti eftir atvikum. Þá kemur 28 daga rúlla í einu en aðeins hluti hennar afgreiddur í einu.
Flest vítamín og bætiefni er hægt að setja inn í rúllur líka en þá þarf símtal frá lækni eða beiðni frá skjólstæðingi. Ekki hægt að senda lyfseðla fyrir þeim.
Mjög nytsamlegar upplýsingar, takk fyrir mig!