top of page

Lyfjaskömmtun

  • valtyraron
  • Feb 12, 2024
  • 1 min read
  • Lang auðveldast er að gera lyfjaskömmtun í gegn um miðlæga lyfjakortið

  • Ef fólk er ekki með miðlægt lyfjakort er best að búa slíkt til fyrst

  • Haka þarf í lyfjaskömmtun þegar nýr lyfseðill er gerður / gamall endurnýjaður

  • Þá á sjálfkrafa að koma mánuðir 12 inn á seðilinn.

    • Ef það gerist ekki þarf að tryggja að seðillinn endist í 1 ár

  • Þegar allir lyfseðlar eru klárir getur læknirinn hringt í apótek og látið græja skömmtun eða sjúklingur getur farið sjálfur í apótek.

  • Öll apótekin á Akureyri sjá um að skaffa lyfjarúllur. Sjúklingur þarf að velja sjálfur við hvaða apótek viðkomandi vill skipta.

  • Þegar breyta þarf skömmtun þarf að gera nýja skömmtunarseðla og hringja í viðkomandi apótek.

  • Flest apótek geta afhent lyf á 7, 14 eða 28 daga fresti eftir atvikum. Þá kemur 28 daga rúlla í einu en aðeins hluti hennar afgreiddur í einu.

  • Flest vítamín og bætiefni er hægt að setja inn í rúllur líka en þá þarf símtal frá lækni eða beiðni frá skjólstæðingi. Ekki hægt að senda lyfseðla fyrir þeim.

 
 
 

1 Comment


Slabbi
Nov 21, 2024

Mjög nytsamlegar upplýsingar, takk fyrir mig!

Like
bottom of page