top of page

Hæfni til aksturs

  • valtyraron
  • Sep 6, 2024
  • 1 min read
  • Lögreglan getur beðið okkur um að gera staðlað mat á ökumanni sem er stöðvaður við akstur. Lögreglan á að vera með eyðublaðið sem fylla skal út.

  • Ástæðan er sú að önnur lyf en bara áfengi og vímuefni geta haft áhrif á getuna til aksturs, svo sem geðrofslyf, hjartalyf o.s.frv.

  • Við getum vitanlega ekki svarað öllum spurningum á vettvangi svo sem hvaða lyf sjúklingur tekur að staðaldri, en hægt er að fylla í þær upplýsingar næst þegar maður kemst í tölvu.

  • ATH: Ef lækni grunar sjúkdóm þá skal senda sjúkling til frekari skoðunar, e.t.v. á BMT.

    • Sem dæmi hefur höfundur verið beðinn um akstursamt á sjúklingi sem reyndist svo vera með alvarlega hyponatremiu sem útskýrði einkennin.

  • Best er að klára vottorðið daginn eftir vaktina í samráði við yfirlækni.



 
 
 

Comments


bottom of page