Hnefaleikavottorð
- valtyraron
- Sep 27, 2024
- 1 min read
Ef þátttakandi ætlar að keppa í hnefaleikum verður hann að gangast undir læknisskoðun einu sinni á ári og fá niðurstöðurnar skráðar í þátttökubók.
Nokkuð stífar reglur með þetta frá HNÍ.
Tvær mismunandi þátttökubækur eru til. Ein frá HNÍ og önnur frá AIBA sem er alþjóðleg og ítarlegri.
Lækni er heimilt að neita því að taka þátt í því að gera þessi vottorð enda engin lagaleg eða siðferðisleg skylda um að votta heilsufar fyrir íþróttaiðkun sem innifelur höfuðhögg.
Hugmyndin með þessu vottorði er væntanlega að staðfesta að þátttakandinn sé í lagi fyrir keppni, svo ef eitthvað kemur fyrir sé hægt að staðfesta orsakasamhengi við keppnina í hnefaleikum og bregðast við í kjölfarið.
Kjósi læknirinn að ganga í verkið eru upplýsingarnar færðar inn í þátttökubók viðkomandi þátttakanda.
Samskiptaseðill er stofnaður og V-almennt. Í V-almennt skal rita:
„Þáttökuhandbók til hnefaleika útfyllt. Skoðanir gerðar í samræmi við kröfurnar sem gerðar eru í þátttökubók. Sjá viðhengi í Sögu í sömu lotu“.
Skanna þarf inn afrit af þátttökubókinni enda eru þetta þá orðin heilbrigðisgögn.
Greining: Útgáfa læknisvottorðs Z02.7
Úrlausn: Vottorð - almennt (gjaldskrá).
Velja skjal hæsta gjaldið sem kemur upp. Árið 2024 er það 8922 kr.
Comments