top of page

Framlenging á fæðingaorlofi

  • valtyraron
  • Sep 26, 2024
  • 1 min read

  • Vinnumálastofnun hefur klausur um að heimilt sé að framlengja fæðingarorlof vegna fjölburafæðinga, öryggis & heilbrigðis á vinnustað, veikinda móður á meðgöngu eða veikinda barns eða fötlunar.

  • https://vinnumalastofnun.is/faedingarorlofssjodur/starfsmadur/aukinn-rettur-til-faedingarorlofs

  • Þar er krafist læknisvottorðs

  • Eyðublað: TR-V lenging fæðingarorlofs móður eða TR-V lenging fæðingarorlofs vegna sjúkdóms barns

  • Í reglunum um vottorð fyrir veikindi móður í tengslum við fæðingu er kveðið á um að mat á því þurfi að vera gert af sérfræðilækni.

  • Ég spurði vmst beint hvort heimilislæknir væri ekki örugglega gjaldgengur í að rita þetta vottorð. Svarið var:

    • "Sá sérfræðilæknir sem hefur annast móður og getur staðfest veikindi í tengslum við fæðingu má gefa út þetta vottorð"

  • Vottorðið leiðir mann í gegnum hvaða upplýsingum er óskað eftir.

    Úrlausn: TR-vottorð - lenging fæðingarorlofs vegna sjúkdóms barns eða TR-vottorð - lenging fæðingarorlofs móður.

  • Kemur sjálfkrafa inn við vandaliðun ef samskiptaseðill og vottorð eru í sömu lotu.

 
 
 

Comments


bottom of page