Flugferðir á meðgöngu
- valtyraron
- Sep 25, 2024
- 1 min read
Updated: Sep 26, 2024
Almennt gera ljósmæður þessi fit-to-fly vottorð.
Best er að vísa beiðnum um þetta á þá ljósmóður sem er með konuna í þjónustu.
Misjafnt er milli flugfélaga hvenær þau hætta að hleypa þeim um borð.
Sum miða við 28 vikur, önnur við 36 vikur.
Ekki rétt að við gerum svona vottorð í gegnum heilsuveru eða síma heldur bara eftir að hafa sannreynt að konan sé raunverulega fit-to-fly.
Konur eiga líka að geta opnað sínar síður á Heilsuveru og sýnt staðfestingu á væntum fæðingardegi.
Þó er öruggara að vera með formlegan pappír þess efnis og réttast að sé afgreitt af ljósmóður. Þær hafa verið með sér word-skjal sem þær fylla inn.
Ekki er hefð fyrir því að rukka þetta vottorð sérstaklega enda sjaldnast á borði læknis.
Ef ske kynni að læknir þyrfti að gera vottorðið skal það gert á V-Almennt og textinn á þessa vegu:
To whom it may concern.
I confirm that (nafn): (nafn)
Identification number: (kennitala)
is pregnant and is expecting:
She has been healthy during the pregnancy.
According to history taking and physical examination dated _____ nothig is identified that should prevent her from travelling.
She is fit to fly.
Comments