top of page

Beiðni um ónæmisfræðirannsókn

  • valtyraron
  • Jan 31, 2024
  • 1 min read

Það þarf í raun að gera beiðni á tveimur stöðum

  1. Beiðni í heilsugátt: Skrifar "ónæmis" í flýtileit. Kóðinn sem lang oftast er notaður er ONÆM

  • Þarna er í raun verið að biðja um blóðstunguna sjálfa í eitt serum-glas (rautt með gulu eða rautt með svörtu)

  1. Beiðni Cyberlab um hvað á að mæla

  • Ýtt er á Rannsóknir í fellilistanum. Valið Ónæmisfræði

  • Þá á Cyberlab að opnast í nýjum glugga

  • Læknir setur inn aðsetur / request location (HSN Hg. Akureyri)

  • Hakar í það sem ónæmisfræðideild á að mæla.

    • ATH sama kerfið er fyrir sýklafræðideild, veirufræðideild og ónæmisfræði.

    • Einnig er Rannsóknastofa LSH og Rannsóknastofa SAk inni í sama kerfi. ATH að velja rétt

    • Ónæmismælingar eins og ANA, ENA og sértæku mótefnin eru bara mæld á LSH


Sjúklingur bókar sig svo í sýnatöku eins og ef um venjulega blóðprufu sé að ræða

Ef á að taka ónæmisfræði ásamt öðru getur beiðnin um ónæmisfræði-sýnið staðið með beiðni um aðrar mælingar (svo sem sökk, crp osfv.) Beiðni um blóðtökuna í ónæmisfræði þarf ekki að vera á sér beiðni.

 
 
 

Comments


bottom of page