Ökuleyfisvottorð
- valtyraron
- Mar 6, 2024
- 2 min read
Eyðublað: V-Ökuleyfi
Lágmarks skilyrði á sjón fyrir venjulegt ökuleyfi eru 0,5 á öðru auga
Til að meta sjón notum við Sloan letter chart (eða Snellen chart)
Sjúklingur á að standa 6 metrum frá sloan chart
Á spjaldinu er brot sem maður reiknar út í tölu sem er 0,1-1,2
Sum spjöld eru flóknari en önnur en þessi einföldu brot eiga að leynast inni á milli.
Í besta falli er þetta skimpróf sem við gerum. Þú sem læknir hefur rétt á að neita að gera vottorð ef klínísk skynsemi segir þér að þessi einstaklingur hafi ekki nægilega góða sjón eða aðra getu til aksturs og þá vísað í uppvinnslu eða meðferð.
20/160 = 0,125
20/125 = 0,16
20/100 = 0,2
20/80 = 0,25
20/60 = 0,33
20/40 = 0,5
20/30 = 0,66
20/25 = 0,8
20/20 = 1
20/16 = 1,25
Spurning um rauðan og gulan lit er hægt að skima fyrir með að sýna mynd á tölvusjá af ishihara test eða slík spjöld. Ef þetta tekur sjúkling óeðlilega langan tíma er hægt að vísa í nákvæmari skoðun fyrir litblindu.
Næsta spurning er um heyrn (mælt mál í fjögurra metra fjarlægð). Þegar maður gerir sjónprófið er þetta prófað í leiðinni (með að sjúklingur heyri fyrirmæli hvaða línu skal lesa)
Næstu spurningar lýsa sér sjálfar.
Reglugerðin kveður á um nokkur skilyrði fyrir ökuleyfi sem ekki er spurt sérstaklega um í vottorðinu. Það getur verið gott að fletta upp í því ef um mjög heilsuveila einstaklinga er að ræða. Þetta finnst í: samgöngustofa -> Reglugerð (blaðsíða 54)
III. VIÐAUKI - Lágmarkskröfur um andlega og líkamlega hæfni til að stjórna vélknúnu ökutæki
Gagnlegt skimpróf fyrir eldri einstaklinga er að biðja þá að teikna klukku á autt blað (klukkupróf) og stilla klukkuna með því að teikna stóran og lítinn vísi. Það próf skimar á skjótan hátt fyrir rýmisskynjun og getu til að framkvæma verkefni í réttri röð.
Eyðublað: V-ökuleyfi
Greining: Útgáfa læknisvottorðs Z02.7
Úrlausn til að vandaliða: Vottorð - ökuleyfi

Comments